Sidasta bloggid…

Heil og sael! Nuna fer alveg ad styttast i ad eg komi heim, thad er otrulegt hvad timinn lìdur. I dag er sìdasti skoladagurinn (f. utan à morgun en thà er samt odruvìsi dagur en vanalega) og vid ì bekknum mìnum erum oll klaedd ì fin fot thvì à eftir aetlum vid ad taka bekkjarmyndina okkar. Hun kemur sennilega innà fb ì dag eda à morgun.
I fyrradag var “Romverski kvoldmaturinn” thar sem ad krakkarnir i skolanum, foreldrar, fraendfolk og vinir komu oll saman klaedd ì ròmversk klaedi og bordudu romverskan mat. (meirogminna allir ùr baenum voru tharna) Thessi “hàtìd” àtti ad vera haldin à baejartorginu en thar sem ad klukkan fimm  var hellirigning thurftum vid ad flytja hàtìdarholdin inn. Thar sem ad vid vorum svona 400 manns tok alveg slatta af tìma ì ad hleypa ollu folkinu inn ì salinn og gàtum vid ekki byrjad syninguna fyrr en um hàlf tìu. Stelpur ùr skolanum minum donsudu og krakkar syndu leikrit (allt audvitad ì romverskum stìl) og svo syndi eg magadans. Thad var ekkert smà gaman en samt mjog stressandi thvì thad voru allir ad horfa à mig à bumbunni. Er samt mjog stolt yfir ad hafa gert thetta, nuna eiga thau allavega ekki eftir ad gleyma mer audveldlega.
Um sìdustu helgi fòr èg à lokanàmskeid hjà AFS med ollum skiptinemunum à Nord-Vestur hluta Italiu. (Svona eins og eg fòr à ì oktober) Thetta var olysanlega erfid helgi thar sem ad var gràtid og gràtid og gràtid yfir theirri stadreynd ad eftir mànud lìkur skiptinemaàrinu okkar. Sjàlfbodalidarnir lètu okkur s.s. horfast ì augu vid thad en their voru oft med samviskubit yfir thvì ad làta okkur lìda svona illa. Eg finn samt ad eftir helgina er eg miklu ròlegri yfir thvì ad koma heim og er eiginlega bùin ad saetta mig vid thad. Thad verdur ad sjàlfsogdu erfitt en eg lifi thad af. Eg hlakka lika til ad fara til Romar og hitta alla 500 skiptinemana sem eru à Italiu og sèrstaklega 10 skiptinemana mina frà Islandi.
I sidustu viku kom Giulia og tvaer vinkonur hennar frà Astraliu (Giulia er àstralska stelpan sem var hjà fjolsk minni ì fyrra ì thrjà mànudi med AFS) og gistu ì eina viku. Thaer eru algjorar skvìsur og thad var thvì smà thyngjandi ad hafa thaer ì herb vid hlidinà mìnu og ì sama badherbergi. Vid fòrum med thaer ad skoda helstu stadina hèr ì kring og theim leist bara vel à. A midvikudeginum (à fimmtudag var frì ì skolanum) forum vid ì afmaeli til thriggja vinkvenna minna. Thad var òtrùlega gaman en vid fòrum à diskotek à strondinni sem var ekkert smà flott. Rùtan skiladi okkur heim kl. sjo um morguninn og kl. ellevu thurfti eg ad vakna til ad fara à AFS nàmskeidid. Thid getid imyndad ykkur hversu erfitt thad var. Astrolsku stelpurnar skildu eftir ì herb sinu fullt af dòti, s.s. skòpar, handklaedi, plokkara, sjampò, krem, vodkaflosku, bikini o.fl o.fl. Thaer eru algjorar.

Eg er buin ad vera 4 daga à strondinni med ommunnu og vinkonu hennar sem leigdu sèr hùs thar og er thvì ordin vel brùn og saet. Svo fer eg aftur ì naestu viku, verd ad nyta mer thessar alsìdustu vikur. Svo skrìtid ad thad sè komid ad thvì ad telja nidur dagana, mer finnst thetta mjog òraunverulegt…
Ok mamma var ad koma innà skype, aetla ad fara ad tala vid hana ì sìdasta skipti àdur en eg kem heim, svo set eg mig ì einangrun frà Islandi :)

kossar og knùs, Magnea

Bara 52 eftir…

Jaaaaeja! Ordid svolìtid langt sìdan sìdast. à thessum einum og hàlfum mànudi sem er lidinn er eg bùin ad hafa thad askolli fìnt. Gaman ad segja frà thvì ad thegar èg àtti afmaeli hafdi eg engar aetlanir um ad halda upp à thad, eg er ekki mikil “adhaldaafmaelisparty manneskja”. Afmaelisdagurinn var thvì bara mjog venjulegur dagur, eg fòr ì skolann og svo ì raektina og um kvoldid fòr eg ùt ad borda pizzu med mommu og Mario vini mìnum. Pizzan var mjog gòd og eg bara nokkud sàtt med afmaelisdaginn. Mario vildi samt bjòda mèr upp à eftirrètt à veitingahùsi fraenda sìns eftir pizzuna thannig eg og hann fòrum saman eftir pizzuna. Hann vildi samt adeins stoppa fyrst à einum bar og tala vid eina stelpu. Eg skildi thad alveg, enda var hann svaka hrifinn af thessari stelpu, thannig vid skruppum fyrst à thennan bar. A barnum labbadi eg svo inn ì innri salinn og fann thar alla vini mìna sem hròpudu “auguri!!” (”til hamingju!!”). Thad var bùid ad hengja upp à vegginn risa-borda med àskrifad “Til hamingju med afmaelid” à ìslensku. Eg àtti svo ekki von à surprise-veislu og fòr eiginlega bara ad skaela, mer hefdi aldrei dottid ì hug ad einhver myndi gera eitthvad thessu lìkt fyrir mig. Thau gàfu mer oll saman afmaelispakka sem var ferd fyrir tvo à hòtel à Italiu eda ì Frakklandi, innifaldi nudd, snyrtingar og gisting ì eina nòtt. Thad er haegt ad velja frà svona 50 hòtelum og eg er ekki ennthà bùin ad velja hvert eg vil fara eda med hverjum eg vil fara. I partyinu var svo bordad mat og svo komu thau med afmaeliskoku med ìslenska og ìtalska fànanum og skrifad eitthvad ì likingu vid “til hamingju med afmaelid!”. Eg var ì uppnàmi allt kvoldid og à aldrei eftir ad gleyma thessu.

Um daginn skruppum vid mamma, skolastjorinn minn og einn bekkjarbròdir minn til Napoli, sem fyrir thà sem vita thad ekki er stòrborg à sudurhluta Italiu, rètt upp vid Vesuvìus eldfallid. Thar voru thau ad fara à einskonar ràdstefnu og èg fèkk ad fylgja med, thvì ad thad er skylda ad sjà Napoli thegar madur er à Italiu. Napoli er fraeg fyrir pizzurnar, kaosid og òtrùlega karatterstòrt fòlk. Thetta var algjorlega annar heimur og ekkert sem lìktist litla baenum mìnum hèr. Strax thegar vid komum ùt af lestarstodinni sàum vid hrùgur af rusli à gotunum, leigubìla bòkstaflega allstadar og fòlk sem hròpadi og kalladi og allir ad reyna ad selja manni eitthvad. Thad tòk à mòti okkur fòlk frà einum skòla tharna, en kennarar og krakkar frà hverju hèradi à Italiu voru à thessari ràdstefnu. A ràdstefnunni var talad um mafìuna og hvernig hùn vaeri ad nà allt of miklum voldum à fòlkinu. T.d. thà eru nùna kosningar ì gangi og their sem ad kjòsa Berlusconi eda einhvern, fà borgad 40/50 evrur. Thau fòru med okkur ad heimsaekja mjog fallegan smàbae rètt f. utan Napoli thar sem ad goturnar voru bòkstafglega audar thvì ad fòlkid thorir ekki ad fara ùt vegna hraedslu vid mafìuna. I thessum bae fer 50% af krokkunum ì skola og kennararnir eru farnir ad ganga à milli hùsa til ad segja krokkunum ad fara ì skola. Med thvì eru their ad leggja lìf sitt ì haettu thvì ad fyrir mafìuna er betra ad fòlkid fari ekki ì skòla thvì their ògàfudu eru lìklegri til ad kjòsa ì mafìuna. Mjog àhugavert og òhuggulegt ad sjà og heyra thetta allt og thad sem eg sà ennthà meira òhhugulegt var ì midborg Napoli ì litlu hlidargotunum thar sem ad allt var òlysanlega skìtugt og fòlk sem ad horfdi mjog skringlilega à mann. Mamma vildi helst ekki sleppa af mèr hendinni og var oft mjog stressud um mig. Vid sàum hurd af einni bùd/matvoruverslun thar sem ad bùid var ad skjòta svona 15 byssukùlum og sàst ennthà ì byssukùluforin. Eg sem hèlt ad thetta vaeri bara til ì mafìu-bìòmyndunum.
Hòpurinn frà skolanum mìnum vard svo vidskila vid hina à einum tìmapunkti thegar vid vorum ad kaupa okkur sòlgleraugu (3 gleraugu à 10 evrur!) og thegar vid spurdum til vegar einn napòlìskan mann sem var ad keyra v. hlidinà okkur sagdi hann “hvad erudi ad gera hèr? Drìfid ykkur ì burtu og verid varkàr. Passid ykkur” Thetta var ì midbae Napoli og vid urdum oll mjog skelkud og drifum okkur strax à adal-gotuna, thar sem er mun meira fòlk og thar hittum vid restina af hòpnum. Vid bordudum endalaust af gòdum mat og kynntumst helling af nyju fòlki og snerum aftur heim threytt og ùtblàsin eftir thessa yndislegu helgi ì Napoli.

Um tharsìdustu helgi fòrum vid mamma à strondina sem var himneskt! Sòl og blìda og thad lìtur ùt fyrir ad vid forum aftur nùna à laugardaginn! Eda kannski fer eg bara med nyju vinkonum mìnum sem eg eignadist sìdasta laugardag ì afmaeli sem eg fòr ì. Thad var òtrùlega gaman og var dansad alveg fram eftir nòttu, en eg fèkk samt ad gjalda fyrir thvì eg var thunn ì 3 daga eftirà og er ennthà med hàlsbòlgu. Thetta var òtrùlega skrìtid med thessar tvaer stelpur thvì vid urdum bara strax vinkonur ì byrjun kvoldsins og vorum saman allt kvoldid. Thaer eru thvì midur ì hàskola ì Torino à virkum dogum en koma heim ì Ceva um helgar. Sjàum til hvad vid gerum um thessa helgi…

Annars gengur lìfid sinn vanagang hèr, thad er ordid òtrùlega heitt og eg meika eiginlega ekki meira. Er alltaf ùti à svolum ì sòlbadi og er ordin askolli brùn thò eg segi sjàlf frà. Nùna kem eg heim eftir 52 daga en vil helst ekki hugsa um thad. Thetta er òtrùlega skrìtin tilfinning, eg er mjog spennt fyrir thvì ad koma heim og sjà alla aftur, en svo er èg lìka svo hraedd vid ad fara hèdan og skilja allt og alla eftir. Eg à eftir ad verda ì tilfinningalegu uppnàmi, thid getid farid ad bùa ykkur undir thad nùna.
Thegar eg hugsa um thad thà vaeri kannski snidugagra ad blogga oftar og blogga thà minna ì hvert skipti thvì thegar eg laet lìda svona langt à milli blogga verda thau svo endalaust long. Eg aetla samt ekki ad lofa neinu thvì ad sitja ì tolvunni og blogga er ekki beint thad sem mig langar til ad gera ì 25 stiga hita à Italiu. (sèrstaklega thar sem ad thad eru bara 52 dagar eftir!) Thegar eg fèkk e-mailid med flugmidunum okkar heim fyrir nokkrum dogum vard eg alveg midur mìn og fòr gràtandi til mommu sem sagdi ad vid aettum ekki ad hugsa um thetta, verdum bara ad njòta thess litla tìma sem eftir er. Eg aetla thvì ad fara ad gera thad og bid bara ad heilsa og vona ad thid eigid eftir ad eiga gott sumar.
Stòr koss og knùs, èg hlakka til ad sjà ykkur!
Magnea

Blòm ì haga, loksins!!

Oll bloggin byrja à afsokunum à thvì hvad eg er buin ad vera òdugleg ad blogga og aetla eg thvì ad halda thvì bara àfram. Thetta er skammarlegt hvad thad er farid ad lìda langt à milli blogga, eg veit ekki hvad eg à ad segja mer til varnar. Hinsvegar thà er alveg slatti buinn ad gerast à thessum mànudi sem eg er ekki buin ad skrifa. T.d. thà skelli eg mer til Romar mer skolaferdalaginu hennar mommu og hitti thar hana Jenny sem byr rett hjà Rom, en hun er skiptinemi eins og eg. Hùn gisti med mer à hòtelinu allan tìman (4 naetur held eg) og thad var meirihàttar ad vera med henni. Vid skodudum helstu stadina ì Rom, Vatikanid, Colosseum, oll torgin og gosbrunnana og goturnar. Eg tok eftir thvì ad thad var smà erfitt ad breyta aftur yfir à itolskuna eftir 4 daga à ìslensku og eg var strax farin ad hugsa aftur à ìslensku :( I Rom var drullukalt og ìskaldur vindur sem ad gerdi thetta smà erfidara, thvì ad vid vorum labbandi allan daginn, alla daga. Thvì midur bordudum vid ekkert thad godan mat, thvì vid thurftum alltaf ad fara à sama veitingastadinn thar sem ad var ekkert thad
gòdur matur. Vid Jenny og 60 adrir krakkar ùr skolanum hennar mommu àttum mjog gott skolaferdalag saman og skemmtum okkur konunglega.

I sìdustu viku skellti eg mer i Pugliu sem er hèrad alveg nedst à Italiu fyrir svokolludu “skiptivikuna” thar sem ad skiptinemarnir fà taekifaeri til ad sjà muninn à Nordur,- og Sudur-Italiu. Nù get eg med sanni sagt ad sà munur er talsverdur! Strax à fyrsta degi sà eg hann thegar oll fjolskyldan kom heim til okkar ì hàdegismat. 5 rètta màltìd, hròpad og kallad allir à sama tìma og eg sem skildi ekkert thvì allir tala ì “dialetto” sem eg man ekki hvernig madur thydir à ìslensku en thad vaeri sennilega màllìska.(?) Nànast annad tungumàl bara. Thad var smà mikid màl ad fara thangad nidur og mer leid aftur eins og mer leid ì byrjuninn ì september. Ny fjolskylda, nytt umhverfi, nytt tungumàl… Thad kom mer lìka helling à òvart hvad eg saknadi fjolskyldunnar minnar her ì Nordrinu og hùssins mìns og baeins og krakkanna og alls bara. Thau eru lìka oll svo aest tharna nidri thannig thad var mjog gott ad koma aftur ì “ròlegheitin” hèr ì Nordrinu. I Pugliu forum vid à hverjum degi ad skoda e-d, thau hjà AFS voru buin ad skipuleggja allt fyrir okkur. Vid vorum ì svona 30 manna hòpi alltaf, vid sem vorum ad gera skiptivikuna, skiptinemarnir sem bùa ì Pugliu og svo host-systkinin. Vid fòrum t.d. til Taranto sem er stòr idnadarborg en mer fannst hun ekkert thad flott. Mjog òhrein og ekki mikill sjarmi yfir henni. Fòrum lìka ì Alberobello sem er einn af fallegustu baejum Italiu. Thar eru oll husin svokalladir “Trulli”. Sàum lìka keramìksgerd ì Grottaglia, hellana ì Castillana og fòrum ì “aevintyragard” thar sem ad vid thurftum ad gera thrautir uppi ì trjànum, klifra og sveifla sèr, en alltaf med oryggiskròk samt. Frekar eftitt en samt gaman. Italski draumurinn minn uppfylltist ì Pugliu, en eg fèkk loksins ad ferdast aftanà à vespu! Kaerasti host-systur minnar tòk mig ì smà hring. Sjùklega gaman og eg verd ad endurtaka thetta fljòtlega. A fostudagskvoldinu var svona smà party ì ìthròttahollinni ì skolanum thar sem ad vid oll, fjolskyldur og vinir komu saman og sungum og donsudum, svo var hladbord og skemmtiatridi. Einn stràkurinn spiladi à fidlu og eg dansadi magadans fyrir alla! :) Smà stress thar sem ad eg er ekki buin ad dansa ì sex mànudi en à endanum gekk thetta mjog vel og eg skemmti mer konunglega!! Einn daginn fòru thau (AFS) med okkur ad sjà klaustur thar sem ad systurnar sem gengu ì thad fengu aldrei ad fara ùt aftur. Thad var alveg òtrùlegt ad sjà thetta thvì ad mer hefdi aldrei dottid ì hug ad svona stadur vaeri til, og hvad thà ad einhver myndi ganga ì thad! Eg kynntist svo svona 2000 nyjum krokkum tharna og à laugardagskvoldinu thegar vid thurftum ad kvedjast, voru allir ì tàrum thvì vid vorum ordin mjog gòdir vinir oll. Eg get ekki imyndad mer hvernig thetta verdur thegar vid verdum oll saman ì Rom, thad verdur hraedilegt. (Vil ekki einu sinni hugsa um thad.) Eg bordadi yfir mig af gòdum mat, ìs og saetindum og kom heim med mjog svo òvelkomin 3 aukakìlò. Thà tekur megrunin bara aftur vid, sallat og raektin à hverjum degi. Thegar vid vorum ad keira à flugvollinn ì Pugliu lenntum vid ì helljarinnar umferdartreppu og vorum vid thvì naestum thvì buinar ad missa af flugvelinni. (Eg, Anna(finnsk) og Renata(brasilìsk)). Anna missti lìka flugmidann sinn à gòlfid à flugvellinum og komst thvì ekki inn ì hlidid.. Meirihàttar vesen en à endanum vorum vid allar um bord ì vèlinni, daudthreyttar en alsaelar. Ad koma aftur heim eftir thessa brjàludu viku var meirihàttar, eg var farin ad sakna mommu og matsins og herbergisins mìns svo mikid. Atti samt ekki von à thvì ad sakna allra thessa hluta, greynilegt ad madur veit ekki hvad madur hefur fyrr en ad madur hefur thad ekki lengur. Hèr ì Ceva var samt ekkert breytt, à midvikudeginum hofdu thau ì skolanum farid ì skìdaferdalag, glampandi sòl og blìda. Thvì midur var eg ì Pugliu en eg tharf bara ad fara fljòtlega à skìdi thvì ad hèr er ad koma vor og ekki mikid eftir af skìdavetrinum. Eg kom heim ì allt annan bae, grasid ordid graent og laufin og blòmin farin ad springa
ùt. Ekki leidinlegt. (Samt smà leidinlegt thvì thad thìdir ad thad er ekki mikid eftir af àrinu hèr! :()

I byrjun mars for eg til Ivrea med ollum skiptinemunum af Nordur-Italiu sem er baer rètt fyrir ofan Torino. Thar var haldinn hinn àrlegi appelsìnubardagi thar sem ad milljonum appelsìna er eytt ì thad ad kasta theim ì annad fòlk. Bardaginn var thrjà daga ì rod en vid komum bara à sìdasta deginum. Thar hitti eg lìka Saeunni sem var ì skiptivikunni sinni hèr ì nordrinu, en hùn byr annars à Sikiley. Vid thrykktum og kostudum sko appelsìnum ì allt og alla og eftir bardagann var svona 15cm thykkur appelsìnusafi à gotunum. Eg fòr samt alveg undirbùin med vadstìgvèl og regnsakk thannig eg vard ekkert thad skìtug, bara ì hàrinu og andlitinu :D Fullt af fòlki sem meiddi sig samt alveg helling, fèkk glòdurauga eda blòdnasir o.fl. Enginn af okkur meiddi sig samt, sem betur fer. Eg skemmti mer alveg vel en eftirà finnst mer thetta samt alveg hraedileg eidsla à appelsìnum, vid erum ad tala um tonn af appelsìnum sem hefdu alveg getad verid sendar til Afrìku eda Asìu ì stadin fyrir ad nota thaer ì ad ”skemmta” okkur hèr. 

I gaer var okkur skiptinemunum ì Cuneo hèradi (erum svona 9) bodid ad hitta borgarstjòrann ì Alba sem er baer hèrna stutt frà. Adal AFS konunni hèr fannst thetta svaka mikid màl og vid thurftum alveg ad maeta undirbùin, tilbùin med spurningar og svor fyrir borgarstjòrann. Mer fannst thad frekar heimskulegt thvì ad thetta er bara hver annar madur ì oskop venjulegri vinnu. Thegar vid komum til Alba (u.t.b. klukkutìma lestarferd…) thà var thessi AFS kona sjùklega spennt og aest e-d og vid thurftum endilega ad hegda okkur sem allra best. Vid hittum svo thennan borgarstjòra ì svona fundarherbergi og byrjudum oll ad kynna okkur og segja svona adeins um landid okkar. Svo fòr hann ad tala og taladi ì svona 20 min um sogu Alba og allt sem tengist henni. Vid vorum oll ad drepast ùr leidindum og enginn ad hlusta à hann, fyrir utan AFS konuna. Eftir thessar mjog svo longu 20 minutur vildi borgarstjorinn endilega senda okkur ì “soguherbergid” hans thar sem ad var annar eldri madur sem taladi ì adrar 20 mìnùtur um èg veit ekki einu sinni hvad, thvì eg var ekki ad hlusta. Thad sem eg skil ekki er hvernig sumt fòlk fer ekki ad thvì ad taka eftir thvì ad fòlkid sem er ad hlusta à thad er algjorlega òàhugasamt um hlutina sem thad er ad segja. Skil heldur ekki af hverju thetta AFS fòlk fer ekki adeins ì ad skipuleggja orlìtid àhugasamari hluti fyrir okkur ad gera. Eda kannski er thetta bara eg og mitt àhugaleysi à sogu? 

Eg thekki svo eina stelpu sem verdur 18 àra à morgun. Smà kokkur ì hàlsinum
yfir ad verda 18 àra, allt of hàr aldur. Veit ekkert hvad verdur gert à
stòrdeginum, allavega ekkert planad ennthà. Kannski fer fjolskyldan med mig ùt
ad borda à laugardagskvoldid, thetta er svona smà eins og jòlin aftur, allt er
odruvìsi og engar “hefdir” til ad gera.

Annars bara allt gott ad frètta, er nùna ì tolvutìma ì skolanum og hef thvì
fullt af tìma til ad blogga.. Eg nenni samt ekki ad blogga meira, aetla ad fara
ad senda tolvupòsta à einhverja.. Eg bid ad heilsa ì bili, sè ykkur oll eftir 4
mànudi!

Baci e abbracci, Magnea
 Eg og Saeunn, greynilega Fyrir bardagann thvì erum ennthà hreinar :D

Eg og saeti Brasilìinn ì Pugliu, hress og kàt med fànann à kinninni.

Vid “mamma” ì Pugliu med sjòinn og vindinn ì bakgrunn.

Eg, Ever og Zoè ì fundarherberginu ì Alba, hah hann vissi ekki ad vid vorum ad gera horn à hann >=]

i skolanum vìì

Vùhù er ì skolanum numa og hef ekkert ad gera thannig eg aetla ad skella inn einu !
Er nuna buin ad skipta um bekk utaf thad var e-d stelpuvesen og thau voru aaalltaf ad laera i hinum bekknum en nuna er eg buin ad skipta yfir ì stràkabekk, their eru àri eldri og gera aldrei neitt ì skolanum thannig eg skemmti mer helling med theim :D Veit samt ekki hvort eg verdi allt àrid med theim eda hvort ad eg pròfi ad fara ì fullt af bekkjum. Sjàum til.
Eg var ì Rom um sidustu helgi og er buin ad setja fullt af myndum à fb thannig getit sed ymislegt thar. Digital myndavelin min er samt brotin thannig eg thurfti ad kaupa mer 3 einnota. Thegar eg fòr ad framkalla thaer komst eg ad thvì ad thaer voru eldgamlar og framkalladist eiginlega ekkert af theim !! =( Rom var samt gedveik og eg var thar med Jenny sem var aedi! Toludum bara islensku og mjog thaeginlegt. En nuna var ad hringja thannig eg verd ad fara, thetta var nu meira bloggid frà mer! :D
Heyrumst og sjàumst, vaeri alveg til ì ad fara ad hitta einhverja à skype fljotlega ! :))
Kossar og knùs ! <3
Magnea :o)

Hàlfnud.

Akkùrat ì dag eru lidnir 5 mànudir sìdan eg hèlt af stad ùt ì òvissuna à Italiu. Svei mèr thà hvad tìminn lìdur hratt. Thessu fyrstu fimm mànudir eru bùnir ad vera bestu, erfidustu, skrìtnustu, mest throskandi mànudum lìfs mìns. Eg get naestum thvì sagt ad eg sè bùin ad throskast jafn mikid hèr og à thessum 17 àrum sem eg er bùin ad bùa à Islandi. Naestum thvì.

Hèr gengur lìfid sinn vanagang, eg verd alltaf verri og verri ì ìslensku, ensku og hvad thà donsku og à sama tìma betri og betri ì ìtolsku. Eg var ad fà einkunnarblad um daginn og allar einkunnirnar fullnaegjandi, (fyrir utan ì staerdfr og edlisfr thar sem eg fèkk ekki einkunnir) thannig eg var bara kàt. Hèr skipta einkunnirnar ollu màli og allir vilja hafa haestu einkunn ì ollu à medan mèr gaeti ekki verid meira saman um einkunnirnar mìnar svo framarlega sem thad er ekki fall. (thetta hefur MR kennt manni) Thad skilur enginn neitt ì mèr hèr.
Eg er nùna farin ad hallast ad thvì ad skipta yfir ì MH thar sem ad eg get fengid metid 12 einingar fyrir ìtolsku og kannski e-d meira fyrir àrid hèr, ì stadin fyrir ad tapa heilu àri ì MR. Thà get eg vonandi ùtskrifast à rèttum tìma og thar af leidandi snùid fyrr aftur til Italiu. Eg elska thetta land.

A fimmtudaginn fyrir viku fèkk èg aftur svona smà thunglyndiskast ì skòlanum thar sem ad mer leid mjog illa og langadi bara svo mikid ì einhvern til ad tala vid og grìnast med. Mer leid svo fyrir utan stelpnahòpinn sem eg er med, thvì thaer eru bùnar ad vera vinkonur sìdan thaer voru litlar og thekkjast algjorlega à medan èg alltaf nyja stelpan sem skilur ekki einu sinni alveg allt sem thaer eru ad segja. Eg à bara svo erfitt med ad skilja af hverju thaer eru svona gòdar vid mig og af hverju thaer tòku mèr svona vel hèrna. A Islandi myndi thetta aldrei gerast. Vid islendingar viljum hafa hlutina eins og vid thekkjum thà og reynum ad fordast breytingar, og nyja hluti. Eg get lìka ekki haett ad velta thvì fyrir mèr hvernig og hvort ad èg hefdi hleypt nyrri persònu inn ì vinahòpinn minn, alveg òkunnugri og sem talar ekki einu sinni sama tungumàlid. Kannski eru thessir vinskapir sem eg er bùin ad gera hèr bara yfirbordskennd og enda jafn fljòtt og thau byrjudu. Thennan sìdastlidin fimmtudag leid mèr lìka eins og thad skipti ekki màli hvort ad eg komi med thegar vid forum ad gera e-d saman, eg er alltaf velkomin ad koma med hvert sem thaer fara, en ef eg kem ekki med, thà skiptir thad heldur ekki màli. Eg meina eg à alltaf pìnu erfitt med ad tala thegar eg er ì hòpi af thvì ad umraeduefnid breytist oft svo hratt og eg hef ekki hradann ì ad baedi fylgjast med og skjòta inn commentum. Hugsadi lìka ùt ì thad ad thaer vaeru kannski smeikar vid ad mamma hèr myndi skamma thaer ef thaer vaeru ekki med mer af thvì ad thaer thekkjast audvitad allar.
I heildina sagt var eg farin ad hugsa ùt ì allskonar hluti og ì korters hlènu fòr èg til Mortu vinkonu minnar sem var skiptinemi ì bandarìkjunum ì fyrra og er àrinu eldri en èg. Gat ekki haldid thessu lengur inni thannig fòr ad hàgràta hjà henni og grèt eiginlega thad sem eftir var af skòladeginum. Marta hjàlpadi mèr samt alveg òtrùlega mikid og èg à aldrei eftir ad gleyma henni, ein af yndislegustu manneskjum sem eg hef kynnst.
Stelpurnar voru ekki sàttar vid ad mer hefdi lidid svona illa og ekki sagt neitt vid thaer, thaer skilja bara ekki ad eg er ìslendingur og à mjog erfitt med ad tala um tilfinningar og vandamàlin mìn. Thaer lìka skilja kannski ekki alveg hvernig mèr lìdur og hvad eg er ad ganga ì gegn um, eg skil thad oft ekki einu sinni sjàlf. Eg hef lìka thessa thorf fyrir ad vera alltaf hressa typan thannig eg vil ekki vera ad threyta thaer med vaeli ì mèr. Eg hefdi kannski betur àtt ad gera thad ì thetta skipti, thà hefdi eg allavega ekki byrgt allt inni og à endanum sprungid eins og gerdist tharna.

Hinsvegar :D thà fòrum vid à skìdi laugardaginn sl. eg, Andrea og Laura (vinkonur) og mamma og vinir hennar sem eru allir kennarar ùr skòlanum okkar. (Hvenaer gerist thad à Islandi ad madur skròpar ì skòlanum og fer à skìdi med kennurunum sìnum?)  Thad var mjog gaman og fuuullt fullt af fòlki ad skìda. Eg sà svona fjòrar manneskjur à bretti, thad eru allir hèr à skìdum, òlikt okkur ì Blàfjollum. Eg snèri svo aftur heim med kvef og hausverk og er nùna ennthà smà veik. Held ad thetta sè fjòrda eda fimmta skipti à 5 mànudum sem eg er med hàlsbòlgu og kvef. Eg spyr mig hvort ad thad sè edlilegt ?

Eftir u.t.b. 2 vikur, 21.febrùar aetlum vid ì 4 daga frì til Romar. Eg fer med skòlaferdalaginu hennar mommu thar sem ad  eg og 70 14/15 àra krakkar forum med lest og gistum à hòteli og skodum helstu stadina ì Rom. Vinkona mìn hùn Jenny sem byr rètt hjà Rom aetlar kannski ad koma og vera med okkur allan tìmann, thà mun hùn gista med mer i herbergi à hotelinu thannig ad vid getum spjallad um allt langt fram à nòtt. Hùn er nùna ad spurja foreldra sìna og aetladi ad làta mig vita ì kvold hvort hùn mà (utaf hun myndi thurfa ad sleppa 4 dogum af skola (en vid erum hvort ed er aldrei ad gera neitt ì skolanum thannig thad skiptir vonandi ekki màli)) samt er klukkan ad verda nìu nùna thannig kannski heyri eg ì henni à naestu dogum. Vona samt svo ynnilega ad hun megi koma med!

Eg fèkk thaer skemmtilegu frèttir ì gaerkvoldi ad eg er ad fara ì viku “frì” til Taranto ì Puglia, sem er alveg nedst à Italiu. Eg fer thangad og gisti hjà einhverri fjolskyldu og tharf ad fara ì skolann thar og fae thannig ad sjà thennan margumtalada mun à Nordur- og Sudur-Italiu. Fer 20. mars til 27. mars sem er vor tìmabil thar thannig sòl og sumar og gaman. Kristjana vinkona mìn verdur lìka thar à sama tìma og èg thannig ad vonandi hitti èg hana eitthvad!

Fleyri skemmtilegar frèttir, thad er naestum thvì bùid ad taka àkvordun um ad vid forum til Grykklands, Athenu ì skolaferdalaginu 4. aprìl!! Mjog spennandi.

Eg tharf nuna ad fara ad anda ì einhverja vèl sem hjàlpar til vid ad losa um kvefid. Hàlftìma prògramm, gedveik laeti og tharf ad halda grìmunni upp ad andlitinu à mèr.. Eins gott ad thetta kvef fari ad drìfa sig ì burtu. Allsherjarblogg sem eg er bùin ad skrifa hèr, vona ad thid hafid haft gagn og gaman af, skelli hèr inn nokkrum myndum svona upp à grìnid…

  Eg, Andrea og Laura à skìdum à laugardaginn sl.

Fòr ì 5/6 tìma fjallgongu um daginn.. Aetla aldrei aftur ad stìga faeti à fjall.

Vid Sky ad leika ì snjònum

Bae ì bili, Magnea <3

Pizza, pasta & braud

Okei smàà langt sìdan eg hef bloggad sìdast =D Bidst bara afsokunar, eg er eiginlega ekki med neina adra afsokun en hrein leti.

A daga mìna er aldeilis margt drifid. Byrja bara thar sem eg haetti sìdast, sem lìtur ùt fyrir ad hafa verid um jòlin..
Strax eftir jòlin fòr mer ad lìda betur, heimthràarlega sèd. Aramòtin mìn voru hinsvegar frekar omurleg, eg var skìtveik og svo var e-d smà stràkadrama à mèr. Eg fòr med Onnulìsu og Paolo ì party til vina Paolo thar sem eg thekkti engann. Var frekar skrìtid ad segja “Gledilegt nytt àr!” vid personur sem madur hefur aldrei sèd àdur og à aldrei eftir ad sjà aftur.
Man svo eiginlega ekki hvad eg gerdi vid restina af jòlafrìinu, thad getur ekki hafa verid mjog merkilegt fyrst eg man ekki eftir neinu. Var allvega veik ì gòda viku. Svo byrjadi skòlinn aftur 10. jan minnir mig, geggjad stud. Eg held àfram ad laera af krafti (eda thannig). Stari bara ùt um gluggann. Và og thad er alltaf svo thungt loft inni ì stofunni!! Er oft naestum dàin ùr sùrefnisskorti. Og thad opnar enginn gluggann thvì thad er svo kalt ùt.

Sìdastlidinn mànudag gerdist svo voda sorglegur hlutur hèr ì Ceva. Thad dò stràkur sem byr hèr ì bìlslysi. Hann var 24 àra og var einn af fyrstu vinum mìnum sem eg eignadist hèr. Hann vann ì raektinni svo eg sà hann naestum daglega. Hèr er hefd fyrir thvì ad fara à spìtalann eda heim til hins làtna og sjà lìkid og bidja fyrir thvì thannig à mànudeginum fòr eg med mommu ad sjà lìkid. Thad var hraedilegt ad sjà thennan stràk, alltaf brosandi og ì gòdu skapi, hann hafdi hàlsbrotnad ì bìlslysinu og thad sàst à lìkinu og og og eg vil eiginlega ekki hugsa meira um thad =( Var alveg hraedilegt, eg hef aldrei upplifad neitt thessu lìkt. Thad maetti allur baerinn ì jardarforina hans sem var à midvikudaginn thvì ad hann var vinur allra hèr. Kirkjan stùtfull og fullt af fòlki à gotunni fyrir utan. Mer finnst eiginlega skrìtnast ad hugsa um ad lìfid heldur samt bara àfram. Thad er ekkert sem vid getum gert. Vid verdum bara ad lifa nùna àn hans.
Hans verdur sàrt saknad <3.

Annars bara daglegt braud nuna, skòlinn til 1, svo heim ad borda hàdegismat, nokkra klukkutìma gongutùr til ad eyda tìmanum, raektin, borda kvoldmat og svo ad sofa kl. 9. Eg er bùin ad kynnast einum ìtala hèr en hann lìtur ùt fyrir ad vera algjor drullusokkur thannig eg tharf vìst ad fara ad gera e-d ì thvì. Bara frekar erfitt ad fara e-d ad rìfast eda rokraeda à ìtolsku thannig eg er bùin ad vera ad fresta thvì ad tala vid hann. Hann vedur samt alltaf yfir mig og thad eru allir steinhissa à mèr ad èg sè ennthà ad hitta hann. En hvad getur madur gert, hann er med brùnt hàr, brùn augu og dokka hùd. Frekar erfitt ad vera pirradur ùt ì thad.. En hingad og ekki lengra!

A laugardaginn sìdasta var megaball ì Mondovì sem vid fòrum à. Eg skemmti mer mjog vel, thetta var samt bara frekar venjulegt djamm.
En nùna verd eg ad drìfa mig, er ad fara ì spinning tìma eftir 25 minutur!! Eg aetla sko ekki ad koma heim spikfeit eftir allt pastaàtid. Thid eigid ekki eftir ad sjà mun à mèr… (Nema hvad eg kem brùn heim he he he!! =D)

Vonandi hafid thid thad gott, eg laet ykkur vita hvernig fer med gaejanum. Bless ì bili,
ykkar Magnea :o)

Jòlin

Hae allir !
I dag aettu ad vera jòlin en thau halda upp à jòlin 25. des. Aetli eg fari ekki bara ì raektina eda slaki à ì dag ha ha.
I fyrradag var ballid fyrir àrganginn minn, vid vorum svona 60 krakkar, bordudum fyrst à diskòtekinu og svo kom restin af skòlanum og dansad fram eftir nòttu. Eg skemmti mer voda vel, rùtan kom med okkur heim kringum 5 thannig eg fòr ekki ad sofa fyrr en um 6. Eg vaknadi kl hàlf 3 daginn eftir utaf eg var svo svong, bordadi hàdegismat og fòr svo aftur ad sofa til 6. Mjog gòdur dagur :D
Er reyndar ennthà mjog aum ì fòtunum, var à haelum allt kvoldid og thar sem ad nànast enginn gengur ì haelum herna dags daglega er eg bùin ad missa allt haela-ùthald.
I gaer var grenjandi rigning thannig nuna er allur snjòrinn farinn af gotunum =(( En sem betur fer ekki ì fjollunum, fullt af snjò thar. Vid forum vonandi à skìdi à sunnudaginn.
Eg er bùin ad vera ad fordast facebook og tolvuna ì smà tìma nùna, eg hefdi kannski ekki àtt ad koma ì dag heldur, er ordin sjùklega leid nùna. Thetta vardur meirihàttar skrìtinn dagur.
Eg get ekki verid lengur ì tolvunni, aetli eg skelli mèr ekki ì gongutùr nùna, reyna ad hrista thessa depurd af mer.
Vildi bara òska ykkur allra gledilegra jòla, vona ad thid eigid yndisleg jòl.
Kossar og knùs
<3

skòlinn, Feneyjar & snjòrinn

Eg er farin ad sjà thad ad mèr finnst alltaf leidinlegra og leidinlegra ad blogga og thad lìdur alltaf lengra og lengra à milli blogga. Vona ad thid afsakid thad… =)
Sìdastlidin vika.. Và. Ein erfidasta, skrìtnasta og besta vika lìfs mìns. Viljidi gòdu frèttirnar eda slaemu fyrst ?  Slaemu;

mànudagurinn var voda venjulegur ì skolanum, ekkert ad gerast og mèr ad leidast. Thridjudagurinn alveg eins. Stelpurnar ad tala à ljòshrada og èg stend bara tharna. Midvikudagurinn byrjadi nàkvaemlega eins. I fyrsta tìmanum leid mer hraedilega og thad eina sem eg vildi var ad hafa einhvern ad tala vid og einhvern sem skildi mig fullkomlega. Var ordin svo threytt à thessu “skil svona naestumthvi og thau skilja mig svona naestumthvi”. Stelpurnar sàu ad eg var eitthvad skrìtin og voru alltaf ad spurja hvort eg vaeri ì lagi. Eg pròfadi ad breyta af vananum og segja hvernig mèr leid ì raun og veru, ekki ì lagi. Thetta var ì midjum tìma thannig thaer gàtu eiginlega ekkert talad vid mig thvi thad er bannad ad tala ì tìma. Mer fòr svo ad lìda alltaf verr og verr og var eiginlega farin ad gràta ì midjum tìma. Grace vinkona mìn sagdi ad eg gaeti alveg farid à klòsettid ef eg thyrfti thannig eg dreyf mig à klòid en var eiginlega ekki nògu fljòt ùt ùr stofunni. Eg hljòp hàgràtandi à klòid og var thar ì svona 30 min. Stelpurnar skiptust à ad koma og tala vid mig og reyna ad hugga mig. Thaer voru svo gòdar, buda mèr allar heim til sìn og ef ad eg vildi einhverntìman gera e-d med theim thà aetti eg bara ad hringja. Eg kom svo til baka ì stofuna, raud um augun og ùtùrgràtin. Sem betur fer var ùppàhalds kennarinn minn ad kenna thannig hann gerdi ekkert màl ùt ùr thessu. Allir voru voda gòdir og hughreystandi.    Eftir skòla fòr eg svo til Fossano ad hitta krakkana ùr ìtolskunàmskeidinu ì sìdasta skiptid thvì nàmskeidid er nuna bùid. Vid fòrum à kaffihùs (eg fekk mer cappuccino!!) og svo ad borda pizzu. Vid thurftum ad kvedja Pascalinu thvi hun var bara hèr ì thrjà mànudi. Vid fengum svona vott af thvì hvernig thetta verdur ad kvedja alla eftir 8 mànudi, eg hlakka sko ekki til thess. Eg skemmti mer thò mjog vel thetta kvold, gòdur endir à thònokkud slaemum degi.

A fostudaginn var thad svo Padova, thar sem Annalisa byr. Thetta voru eg, mamma Lu, Loridana og Massimo, vinir mommu. Vid thurftum ad keyra yfir nànast alla nordur-Italiu, sirka 5 tìma ferdalag. Thad var voda gott ad hitta Onnulisu aftur, hùn hefur thad sem betur fer fìnt ì Padova. Eg gisti hjà Onnu en mamma og co gistu à hòteli. Thetta kvold skodudum vid smà borgina, fengum okkur gott pasta ad borda og skridum svo daudthreytt undir saengina. Laugardagur; Raest klukkan 8, lestin klukkan 9. Eins og nànast alltaf vorum vid frekar sein à lestarstodina thannig vid thurftum ad hlaupa til ad nà lestinni og vid upplifdum svona “hurdin aaalveg ad lokast, vid smeygjum okkur inn, og bùmm, hurdin lokast” Màtti ekki sekùndu seinna vera. Vid komum svo à àfangastad 20 min seinna. Thegar eg labbadi ùt af lestarstodinni trùdi eg ekki thvì sem eg var ad sjà. Vatn, allstadar !! Thad voru engar gotur! Bara vatn og bàtar og meira vatn. Sjòr! og hùsin voru basicly à vatninu, alveg upp vid thad. Ef thu myndir fara ùt ùr hùsinu thìnu tharna thà myndiru pompa ofan ì vatn. Jà, eg var ì Feneyjum! Hef aldrei upplifad jafn mikid aevintyri. Thessi stadur er òlysanlegur thannig eg aetla bara ad benda à myndirnar sem eg tòk og eru vonandi nùna komnar à facebook. Vid tòkum bat eftir Il Gran Canale og svo lobbudum vid um allt. Stùtfullt af tùristum og tùristabùdum, og alltaf somu hlutirnir; Grìmur og glerhlutir. Vid bordudum hàdegismat à òtrùlega gòdum veitingastad, falinn à milli hùsa thannig thad var ekki svona tùristastadur. Eftir matinn hèldum vid àfram ad skoda borgina, bryr og hùsasund ùr vatni, nìthrongar gotur à milli hùsa, solskyn og blìda. Hreint ùt sagt òtrùlegur dagur sem eg à aldrei eftir ad gleyma! <3

Thetta kvold var okkur bodid ì matarbod til vina Massimos. Their budu upp à thjodarrètt Nordur-Italiu, la polenda. Hef seint smakkad jafn mikinn horbjòd, en, verandi gòdur gestur, àt eg allt. Naesta dag var hellirigning ì Padova en thad stoppadi okkur ekki (hefdi reyndar stoppad mig, en hverju raed eg?) frà thvì ad labba um alla borgina, skoda sofn og kirkjur. Nùna get eg med sanni sagt ad mer finnst bara ekki gaman ad skoda sofn og kirkjur. Thetta er meirogminna allt eins. Sem betur sà Loridana sèr miskunn ì mèr thannig vid stoppudum à kaffihùsi medan hinir klàrudu ad skoda borgina. Eg pantadi mer aftur cappuccino, var nù alveg àgaetur :D Thegar eg kem heim verd eg orugglega farin ad drekka svart og sykurlaust kaffi, svo von verd eg. Held ad thad skemmtilegasta sem eg gerdi thennan dag var à einu safninu thegar kona sem vann thar var ad ùtskyra fyrir mer og tvemur bandarìskum tùristum frà màlverkjunum og herberginum à safninu og greyin skildu ekki upp nè nidur thannig eg thyddi fyrir thau thad sem hun sagdi :D Thad er nù pìnu gaman ad kunna smà ì ìtolsku, og kannski thetta sè nù bara erfidisins virdi… Svo var keyrt heim um seinnipartinn og komid heim kringum ellevu. (ellefu?) Mamma var svo gòd ad leyfa mer ad vera heima naesta dag (i dag) og hvìla mig, thvì eg var nù bùin ad labba nànast stanslaust ì 2/3 daga. Thannig ì dag var sofid til hàdegis, skrifad eitt stk blogg og svo bjò eg til Raviolli (pasta) med ommu! Alveg frà grunni! Ekki samt fara ad gera ykkur einhverjar vaentingar um ad eg sè ad fara ad bùa til pasta thegar eg kem heim, eg adallega horfdi à og radadi à diskinn.

Nùna er loksins byrjad ad snjòa ì Ceva, samt ekkert mikid. Vid mamma skràdum okkur ì skìdaklùbbinn ì dag, forum vonandi naesta laugardag à skìdi! =) T.a.s. ef pakkinn frà Islandi kemur einhverntimann, hann er bùinn ad vera svona 3 vikur à leidinni =(( Hlakka svo til ad borda hardfiskinn og lysid mitt.
Hvad um thad, eg aetla ad segja thetta gott nùna. Bùin ad làta vita adeins af mèr og hvad er bùid ad vera ad gerast, eg hef thad fìnt nùna, ekki hafa àhyggjur =) Allir svo gòdir og nùna er nonna (amma) ì heimsòkn ì nokkra daga ì vidbòt thannig vid fàum voda gòdan mat med hana hèr, svo tekur graenmetid aftur vid. (Sem er bara gott, eg hef ekki gott af meiri gòdum mat!) Hafid thad sem allra best kaeru landar, vid sjàumst hress og kàt eftir orstutta àtta mànudi !! <3 <3

-Ykkar Magnea

à Italiu skemmti eg mer tralallalalalalla

Jaaaeja krakka, 66 dagar bùnir og 237 eftir.
Eg er ekki bùin ad vera dugleg ad skrifa, alltaf thegar eg hugsa um ad skella inn einu bloggi thà hryllir mèr vid ritgerdinni sem eg veit ad à eftir ad koma ùt ùr thvi. En hvad um thad, thessu verdur ekki frestad meir.

Lìfid hèr er farid ad ganga sinn vanagang, thad verda alltaf faerri og faerri augnarblik thar sem èg verd agndofa af undrun vid ad sjà hvernig e-d er gert hèr. Eg er bùin ad fara ì nokkur pròf ì skòlanum, ensku, sogu og heimspeki. Thau gengu misvel, gekk vel ì ensku en ekki alveg jafn vel ì sogu og heimspeki. A heimspekipròfinu mìnu skrifadi èg ì stadin fyrir svarid vid spurningunni ad eg hefdi thvì midur ekki skilid textann sem vid àttum ad lesa. Kennarinn tòk thvi bara vel og eg fae ì stadin ad gera verkefnin heima. Vùhù. Fyrir tvemur àrum var ì bekknum mìnum skiptinemi frà Kìna sem laerdi ekki neina ìtolsku à ollu àrinu sem hann var hèr thannig ad sù takmarkada ìtalska sem èg tala nùna er gìfurleg midad vid hinn stràkinn thannig thad eru allir voda stoltir af mèr hèr.
A fostudaginn fèkk èg fyrsta almennilega andlega taugaàfallid. Eg var bùin ad vera med heimthrà ì meira og minn tvaer vikur en ekki bùin ad tala neitt sèrstaklega mikid um thad vid neinn. Bùin ad gràta einu sinni eda tvisvar ì koddann og einu sinni à klòsettinu ì skòlanum. Ekkert màl. Svo nùna à fostudaginn fòr èg eins og vanalega ì ìtolskutìmann ì Fossano og à leidinni heim ì lestinni skrifadi èg brèf til ommu à Islandi. Vid ad skrifa brèfid fòr eg òtrùlega làgt nidur og thegar eg kom heim missti eg thad alveg og grèt ì klukkutìma ein og svo thegar mamma kom heim thà grèt èg ì annan klukkutìma med henni. Hùn var svo gòd vid mig og hughreysti mig heilmikid. Thad er vìst voda edlilegt ad gràta hèr og thegar thad er e-d ad thà er venjulegt ad tala um thad. Eg komst ad thvì tharna og leid svo miklu betur eftirà. Eg fòr sama kvold med ollum stelpunum heim til Mariu Graziu og vid bordudum kvoldmat thar og skypudum vid Eleonoru (systur mìna) og Cioru sem eru bàdar ùti sem skiptinemar. Thetta eru svo yndislegar stelpur sem èg er bùin ad vingast vid, thaer voru midur sìn yfir ad mer hafdi lidid svona illa svona lengi og ekki sagt neitt vid thaer. Thaer sogdu ad thaer hefdu m.a.s. tekid eftir thvi ad eg vaeri e-d odruvìsi ì skolanum og svona. Svo sogdu thaer mer ad framvegis gaeti eg alltaf talad vid thaer og ad eg vaeri ein af hòpnum theirra. <3

A sunnudaginn (i gaer) fòr eg med samskiptinemunum mìnum til Torino ì menningardagsferd. Vid vorum àtta krakkar og thrìr sjàlfbodalidar. Dagurinn àtti ad byrja ì Egypska safninu en thar sem eg missti af lestinni minni og kom klukkutìma of seint thà missti eg af thvì. (eg var hàlf fegin, eg nàdi rètt ì lokinn af safninu og thad var ekkert spes) Svo fòrum vid ì hàdegismat à veitingarstad thar sem madur tekur sèr bakka og svo fer madur og velur sèr rèttina sem madur vill. Eg valdi mer eftirrètt og pasta-forrètt og svo thegar kom ad adalrèttnum thurfti eg ì fyrsta laga ad bìda ì svona 15 min eftir thjonustu og svo thegar loksins komad mer thà benti eg bara à eitthvad sem leit ùt fyrir ad vera mjog gott kjot. (eg nàttùrulega vissi ekkert hvad thetta hèt) Thà tòku vid adrar 20 min eftir thvi ad thau eldudu “kjotid” medan ad hinir krakkarnir hofdu klàrad ad panta sèr matinn à 5 minutum. 35 min bid seinna kom maturinn minn sem ì raun var einhver skrìtinn fiskur. (mer finnst fiskur ekki gòdur) pastad ordid kalt, eg glorhungrud, otrulega heitt, allir hinir bùnir ad borda og fiskur. Ekki alveg upplagdur hàdegismatur en eg lifdi. Eftir thessar raunir forum vid à Kvikmyndasafnid. Thad var ennthà minna spennandi en hitt safnid og eg komst ad thvì ad mèr finnst bara ekkert gaman à sofnum yfir hofud.
Eg er ad uppgotva svo òtrùlega margt um sjàlfa mig og lìfid ad eg get ekki imyndad mer hvernig eg vaeri ef eg hefdi ekki farid ùt. Mer finnst ad allir aettu ad fara svona ùt, thetta er svo margfalt thess virdi thò ad thetta sè lìka thad erfidasta ì geimi.

Nùna à dofinni er ekki mikid ad gerast, ìtolskunàmskeidid ad klàrast eftir 2 vikur, tveir, thrìr dansleikir, og svo 26. nov Feneyjar ! =)) Vid erum loksins bùin ad festa dagsetninguna à heimsòkninni til Onnulìsu (systur minnar) ! Eg, mamma, og tveir kennarar ur skolanum minum, vinir hennar, aetlum ad keyra yfir alla N-Italiu thannig eg à eftir ad sjà svo mikid af fallegu landslagi og borgum. Verd ad vera dugleg ad taka myndir, er ekki enn farin ad taka myndir af neinu, eg er hraedileg thegar kemur ad thvì ad muna eftir myndavèl ! =(

Eg bìst thà vid ad naesta blogg verdi eftir Feneyjar, nema thad gerist e-d stòrvaegilegt ì millitìdinni. Vill einhver vera svo vaenn ad làta ommu (Magneu) vita ad thad er allt ì lagi med mig, vil ekki ad hun fài taugaàfall thegar hun les brèfid mitt sem eg skrifadi ì lestinni og sendi henni.

Endum thetta à gullnu reglunni;

Comportiamoci con gli altri come verremmo che loro si comportassero con noi.

Vonandi hafid thid thad sem allra best heima ì kuldanum,
eg bid ad heilsa ollum, stòr koss og knùs frà Italiu !! <3


 

Sìdastlidin vika…

Ciao!
Eg hef svo sem ekki mikid ad segja, aetladi bara rètt ad làta vita af mèr.. :)
Nùna er “mamma Lù” buin ad vera ì Belgìu ì viku thannig ad “nonna” (amma) er buin ad vera hèrna à heimilinu med mèr. GVUD MINN GODUR hvad manneskjan talar hratt. Hun talar og talar og talar og svo blandast oll ordin saman thannig thad er ekkert smà erfitt ad skilja hana. En hun er samt svo gòd og fyndin, alltaf e-d ad glensa haha :D Og gedveikur kokkur ! :o Annalisa er ennthà ì Padova thannig mer hefur farid heilmikid fram ì ìtolskunni, eda svo held èg alltaf, àdur en amma byrjar ad tala…

Um sìdustu helgi var “6 week camp” thar sem eg hitti hina 50 skiptinemana ì Nord-Vestur hlutanum. Eg held ad thetta hafi verid erfidasta helgi lìfs mìns. Thad hofdu eiginlega allir krakkarnir einhvern frà sìnu heimalandi til ad tala vid en èg var ein frà Islandi. :( Vid fengum òtrùlega mikinn frìtìma sem var mjog erfitt ad fylla upp ì med eintòmu smàhjali. Svo voru lìka allir ad tala spaensku eda fronsku eda thysku thannig thad var frekar erfitt ad taka thàtt ì samraedunum. Eg hafdi verid med frekar mikla heimthrà àdur en eg kom thangar og thessi helgi gerdi thad eiginlega verra. Vid svàfum oll ein ì herbergi og eg held ad eg hafi aldrei verid jafn einmana um kvoldin à aefi minni. Otrulega erfitt. En eg gerdi mer samt grein fyrir thvi tharna hvad eg er òtrùlega heppin med vini og fjolskyldu her. Thad voru margir skiptinemar sem voru ekki jafn ànaegdir og sumir sem thurftu ad skipta um fjolskyldu. Margir lìka sem tala bara ensku og eru thvì ekki ad laera mikla ìtolsku. Komst lìka ad thvì ad eg er ekki sù eina sem er buin ad thyngjast um kìlò eda thrjù :o) Eg er ekkert smà ànaegd med baeinn minn her. Thegar eg kom heim af campinu, daudthreytt og lùin bidu mìn tvo brèf frà ìslensku ommunum. Thad fyllti eiginlega heimthràarmaelinn og eg brotnadi pìnu nidur. “Nonna” kom til mìn og huggadi mig og gaf mèr te, eg vona ad hun hafi skilid mig thegar eg reyndi ad ùtskyra fyrir henni afh eg var leid..

I gaer fòr èg ùt ad borda med nokkrum vinum. Vid thurftum ad keyra ì svona hàlftìma til ad fara til Savona (annar baer) thvi ad ì Ceva er ekki mikid um gòda veitingastadi. Thegar vid komum à veitingastadinn var rod ut ad dyrum og vid thurftum ad bìda ì rùman klukkutìma eftir bordi. Vid fengum ì forrètt einhverja skrìtna ponnukoku sem smakkadist svosem àgaetlega. Svo fengu krakkarnir sèr fiskirètt sem mèr leist ekki alveg nògu vel à, (fiskarnir ennthà med haus og spord) thannig èg pantadi mer mjog gott kjot. Vid hlògum mikid og skemmtum okkur konunglega og svo keypti Mario (kaerasti Francescu) ròsir handa okkur. Ekkert smà krùttlegt! Stràkarnir hèr eru svo miklir herramenn! Stràkar heima, thid aettud ad taka thà til fyrirmyndar :D

A fostudaginn kom vikubladid ì hùs og getidi hver var ì thvì ? :D Jeb, eg er ordin fraeg à Italiu. Thad var stòr mynd og grein og alles. Eg vona ad thau hafi skrifad gòda hluti, eg skildi ekki alveg allt sem var sagt…

Nuna tharf eg eiginlega ad fara ad hjàlpa “nonnu” ad thrifa, thvi mamma Lù kemur aftur heim ì kvold og vid viljum ekki ad hun fài àfall. (hreingerningarbrjàlaedingurinn) Ohh svo à eg lika eftir ad gera HEIMANAMID ì LATINU sem eg kann ekki upp nè nidur ì.

Sakna ykkar allra, hafidi thad gott ! :))

 

kved ad sinni frà Italiu <3

 ”Farinata” sem vid bordudum ì forrètt